Ég um mig frá mér til ykkar

-allt og ekkert um Sösp-

26.02.2008 21:25:29 / zsoab

Langt síðan síðast

Þetta er nú meiri tíðin, ég hef aldrei vitaðum aðrar eins pestir. Það eru bara allir lasnir. Ég hef montað mig af því aðtaka lýsi alla daga og þess vegna yrðum við Almar ekki lasin. Hann var svoveikur fyrir helgi og nú ligg ég L Ömurlegtog ég má ekkert vera að þessu. Bróðir minn er trúlega sá veikasti samt.Aumingjans maðurinn lenti uppá slysó í gær með vírus, fékk næringu í æð og varskoðaður og svo sendur heim og sagt að það væri ekkert hægt að gera. Hannverður bara mikið lasinn og þarf að taka því virkilega rólega í marga daga.

Annars er bara nóg að gera. Minnkaði vinnunaniður í 60% og er komin í fullt nám í HR. Þetta er voðalega gaman en svolítiðmikið að gera. Fyrir vikið er ekki mikill tími til að sinna almennumheimilisstörfum eða viðhaldi á bílnum :S Ef þið sjáið háværan (ósmurður)Yaris,mjög skrítinn á litinn og sjáið ekki inn um gluggana þá er það bara ég...

Almar Blær byrjaði í breakdansi eftir áramótinog er alveg forfallinn. Engir smá taktar hjá honum, ótrúlega flottur J

Hann er líka að standa sig vel í skólanum, fékkmjög góðan fyrsta vitnisburð og fékk að velja sér bók í verðlaun. Hann valdi611 blaðsíðna Harry Potter bók og er að lesa hana! Jebb, þetta getur hann þegarþað er á hans forsendum :D 

Jæja get ekki meir, það er vont að anda, lekurúr nefinu á mér og hausinn er að springa... verð að sofna eða gleypa einhverjarpillur.


Sjúka Sösp


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 15:13:36 / zsoab

YES

Hæ hó jibbí jei og... nei bíddu jól! Allavega saman hvaða hátíð er þá eru allar einkunnir komnar í hús og ég þarf ekki að læra yfir jólin því ég NÁÐI ÖLLU ;) Ég kem sjálfri mér sífellt á óvart. Skoraði hæðst (af mínum einkunnum sko ekki í bekknum) í stærðfræði með 8 og ég sem hafði mestar áhyggjur af henni, var búin að gleyma hvað hún getur verið skemmtileg :þ

 

Jólakortin koma of seint eða ekki eina ferðina enn... ég skrifa fullt af jólakortum á hverju ári en það er ýmislegt sem kemur í veg fyrir að þau komist á leiðarenda. Einu sinni setti ég þau ófrímerkt  í póst, eitt árið pakkaði ég þeim óvart niður og tók með til Spánar og hin árin hafa þau bara gleymst.

Þannig að ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 09:47:19 / zsoab

Bráðum kemur ekki, betri tííííð - Já prófin búin og jólin að koma...

Þá er fyrsta önnin búin, BÚIN :D Ég er svo frjáls eitthvað... En samt ekki. Ég á eftir að þrífa íbúðina (aðeins byrjuð;), taka í gegn herbergið hans Almars því ég LOFAÐI sjálfri mér því að hann mætti ráða hvernig hann tæki til á meðan ég væri í skólanum og svo myndi ég bara taka það í gegn 2x á ári. Kaupa örfáar jólagjafir (komin langt með þær), pakka öllum inn, skrifa öll jólakort, baka piparkökur og sörur, jafnvel dropakökur og gera toblerone ís. Og ég er að fara í bíó í dag hehehe eru ekki örugglega 3-4 vikur til jóla???

 

Ég er frjáls,

ég er frjáls,

frjáls eins og fuglinn er,

frjáls og ég skemmti mér.

Ég er frjáls.

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 23:07:18 / zsoab

Fáðu þér sæti...

Já við finnum okkur alltaf eitthvað að gera í prófunum. Brandarinn í dag er blautur stóll og ég veit ekki hvort að við erum svona vitlaus eða brandarinn bara svona vel lukkaður en allavega þá bleyttum við alveg rosalega einn stólinn þar sem við erum að lesa og það eru 4 búnir að setjast á hann :D:D:D (að vísu ég þar á meðal en ég var fljót að standa upp ;) Tveir voru aðeins of lengi að fatta og rennblotnuðu og við létum einn setjast á blautan klósettpappír TVISVAR SINNUM múhahahahahahaha.... Það er gaman í prófum.

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 12:21:32 / zsoab

Þetta er nú meiri pestin!

 

Nú er kominn föstudagur og ég er enn ekki búin að ná þessari pest úr mér. Þetta er orðir frekar þreytandi. Ég fór heim úr vinnunni í gær, alveg búin á því en er öllu skárri í dag. Þrauka út daginn. Ég sef og sef á milli þess sem ég drekk ferskt engiferrótarte, pressa mér hreinan safa, fæ mér berja-skyrbúst og tek vítamín. Ég er meira að segja búin að elda thai kjúklingarétt og geggjaðan lax... samkvæmt mínum útreikningum á mér að vera löngu batnað!

 

Annars er prófatíðin senn á enda, fer í síðasta prófið á mánudaginn. Það verður svo gott þegar það er frá.


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 17:14:09 / zsoab

Stærðfræðin búin

Ég var búin að sjá fyrir mér að það yrðu blendnar tilfinningar þegar stærðfræðinni væri lokið. En það eru fjármál og tölfræði á næstu önn sem eru stærðfræði fög... góðir tímar framundan ;) 2 próf búin og 1 eftir og geðheilsan er komin upp í 110% Er reyndar lasin en hverjum er ekki sama um smá pest þegar geðheilsan er góð, prófin að verða búin og jólin framundan :D:D:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 17:55:09 / zsoab

Á hraðleið til helv... fyrir símahrekki

Já maður finnur sér ýmislegt til dundurs á milli lestur í prófatíð. Ég og nokkrir félagar mínir í skólanum gerðum rosalegt grín í þremur öðrum félögum okkar í gær og það var svo fyndið að við grenjuðum í klukkutíma á meðan á þessu stóð:D:D:D Kíkið á þetta og athugið að þið verði að fara í lesa meira til að sjá alla söguna og heyra (já það er hljóðupptaka) ;) http://orri.hermannsson.net/

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 21:21:40 / zsoab

Staða á geðheilsu: 90%

1 próf búið, 2 eftir... Sprell a life!

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 13:10:02 / zsoab

Haldiði að nördið hafi ekki bara skellt sé á djammið í prófatíð...

Ég heyrði svolítið skemmtilegt á dögunum ,,Dressing for the job you want" þessi setning festist af einhverri ástæðu í mér og ég hef svona verið að velta þessu fyrir mér. Það er alltaf verið að segja að fólk eigi að vera bara það sjálft, ekki þykjast vera eitthvað annað, um leið er manni kennt að sækjast eftir því sem maður vill (Pursuit of Happyness) og ekki gefast upp. Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Hvort á maður þá að vera maður sjálfur eða breyta sér til að fá það sem maður vill???

Ég er t.d. rosalega stressuð manneskja og hef alltaf verið, þarf alltaf að vera á milljón og þoli ekki fólk og/eða hluti sem tefur fyrir mér (ég er með roadrage á hæðsta stig), ég er skipulögð, verð að hafa vaðið fyrir neðan mig og fæ rugl mikið samviskubit út af minnstu smámunum og margt svona í þessum dúr. Mig hins vegar langar oft mikið til að vera þessi easy going og taka öllu með stóískri ró, ég væri til í að taka betur eftir umhverfinu í kringum mig, njóta alls betur og meira en ég geri og mest af öllu langar mig í tíma og þolinmæði með honum Almari mínum. Ég á svo erfitt með að bara setjast niður og hlusta á Almar, einbeita mér að einu í einu og almennt slappa af. Held ég sé að hugsa svona mikið um þetta því á meðan ég er farin að fá verki fyrir brjóstið af endalausu stressi þá er ég samt að skipluggja skólann næsta vetur. Það er búið að ganga vel þessa fyrstu önn og mér finnst ég bara ekki vera að drukkna það mikið í námi og vinnu að ég hrindi í morgun til að spyrja hvort ég gæti ekki bætt við mig fögum og verið bæði í dagskóla og kvöldskóla næsta vetur. Það var auðvitað ekkert mál sem segir mér að það eru til fleiri geðsjúklingar eins og ég... En um leið og ég er að þessu öllu er ég orðin hrædd um að ég vakni einn góðan veðurdag (ja eða bara vakni alls ekkert, þessi verkur er ekkert spes sko) og átti mig á því að ég er búin að missa af öllu því sem virkilega skiptir máli. Því þó skólinn taki bara 3 ár þá er bara eitthvað annað sem tekur við, það blundar í mér einhver vinnualki sem ræður klárlega öllu núna. En hvað ef mig langar ekki að vera það, hvað get ég gert til að breyta því? Mig vantar eitthvað til að ég hlammi mér niður, dragi djúpt andann og njóti þess bara að vera.

 

En já djammið... Kristrún vinkona kom til mín á föstudagskvöldið og við fengum okkur eina rauðvín, svo skelltum við okkur í bæinn og hittum Brynju vinkonu, fórum á Vegamót og Oliver og hittum svo Klöru á Næsta Bar. Það er dularfullur bar og ég veit ekki hvað hún Klara mín var að gera þar. Þar var engin tónlist og bara fólk yfir fimmtugt nema Klara og nokkrir félagar hennar. Þau hafa trúlega viljað tala saman en ég geri það í vinnunni, skólanum, msn og símanum ;)

Þetta var ótrúlega gaman, ég gleymi því reglulega hvað það getur verið gott að fá sér í glas, fara niður í bæ og hrista af sér slenið, ég elska að dansa.

 

Sösp


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 15:30:30 / zsoab

PRÓF

190,5 klukkustundir í fyrstu þolraun

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 13:25:51 / zsoab

Út í loftið

Fokk það eru bara 17 dagar í fyrsta próf...

En VEI það eru bara 29 dagar þar til prófin eru búin :D

Ætli það sé líf eftir stærðfræðina???

Hvort á ég að njóta þess að vera ein um jólin eða djamma frá mér allt vit?

 

Ég held ég eigi eftir að sakna stærðfræðinnar...


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 16:07:32 / zsoab

Brandarahornið

Já það er ekki mikill tími fyrir blogg þessa dagana en ég bara verð... þetta er fyrir þig Eva mín :) (sorry Kristín mín... ;))

 Kristín systir kom til landsins síðustu helgi (frá Kaupmannahöfn) og ég sótti hana á völlinn á föstudagskvöldið. Á föstudeginum sá ég hana á msn og tilkynnti henni að það væru tæpar 7 klst þar til við myndum hittast... hvað haldiði að þessi elska hafi sagt þá??

Já og tæpar 5 hjá mér... :haha::haha::haha:

Svo var hann Almar minn eitthvað að tjá sig í gær og sagði (í heimsókn hjá ömmu); Mamma ég er með g-streng í fætinum...

Elsku barnið var að tala um strengi/harðsperrur...

En annars gengur skólinn vel, vinnan vel, Almar vel... já ég get ekki kvartað :)

Góða helgi!


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 08:44:33 / zsoab

Bíllinn enn til sölu...

Úff ætlaði að skrifa eitthvað sniðugt um stærðfræðiprófið sem er í dag, stressið sem er að hellast yfir mig, nýju stærðfræði vini mína og síðustu helgi... en það kemst bara ekkert fyrir í hausnum á mér nema stærðfræðiformúlur.

Ég er að finna lóðfellur, aðfellur, diffrun, óbeina diffrun, kostnaðar-/tekju-/hagnaðarföll og jaðar þetta allt saman, hvarfgildi, hágildi og lággildi, allskonar vaxtaútreikningur og fleira skemmtilegt.

 

En hvað segið þið annars gott?

 

Sösp


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 11:24:06 / zsoab

Bíll til sölu

Systir mín er flutt út og vantar að losna við bílinn sinn: 

Toyota Yaris, Árgerð 2000, ekinn 95 þús km, sjálfskiptur, 1300 vél, 5 dyra, ekkert áhvílandi, sumardekk og vetrardekk, reyklaus, samlitur blár.
Góður bíll í toppstandi, nánari uppl. í síma 856 6821 eða andra.andresdottir@kaupthing.com">sandra.andresdottir@kaupthing.com

 kv. Sösp


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 11:21:24 / zsoab

ÓSKAST GEFINS: Nokkrir klukkutímar í sólahringinn

Jamm og já gott fólk. Þarf ég að byrja á því að kynna mig aftur eða munið þið enn hver ég er??? ;)

Það er ekki hægt að segja annað en að það sé búið að vera nóg að gera og ég hef á tilfinningunni að þetta verði ekki stutt bloggfærsla þar sem a'ð akkurat núna er stund milli stríða ef svo má að orði komast :D

Það er búið að vera brjálað að gera í vinnunni við að pakka niður, flokka skjöl, pakka upp og pakka niður aftur því deildin var að flytja í nýju viðbygginguna, rosa flott. Það var orðið svo þröngt á gamla staðnum að þegar ég kom úr fríi þá hafði ég ekkert sæti :D Kosturinn við það er að ég fékk allt nýtt á nýja staðnum ;)

Skólinn byrjaði með miklum látum en gengur bara þokkalega held ég. Er allavega að kafna úr kátínu yfir þessu. Sjáum til hvernig ég verð í nóvember... Ég er 4 daga vikunnar og því mikið háð fjölskyldu, vinum og vandamönnum með pössun. Og vil nota hér tækifærið og þakka góðan stuðning :D Það er endalaust verið að bjóðast til að passa fyrir mig. Gæti þetta ekki án ykkar elskurnar mínar :D:D:D

Skólinn fór ekkert smá vel af stað hjá Almari líka. Hann fær hver verðlaunin á eftir öðrum, uppáhalds fagið hans er saumar, hann er farinn að læra ensku og svo föndraði hann sæta eyrnalokka fyrir mömmu sína þessi elska :D Ég þekki hann varla lengur. Verðlaunin sem hann fékk í gær fékk hann fyrir að taka til á borðinu hjá sessunaut sínum sem gleymdi sér. Og honum gengur svo vel að fara eftir fyrirmyndarreglunum í skólanum, halda opnu fyrir náungann, bjóða góðan dag, fylgja reglum og svona. Ég er að springa úr stolti sko. En ég verð líka að passa mig að hugsa er á meðan er og reyna mitt besta til að halda þessu við. Ég læt Almar fá eitt hrós á miða á hverju kvöldi sem við límum í bók og ég held að það sé að hafa ofsalega góð áhrif á hann. Þetta er líka fínt fyrir mig svo ég gleymi ekki að hrósa honum.

Kristín og Kormákur eru flutt út og líkar bara vel. Brynja er komin í menninguna aftur og búin að taka allt dótið sitt sem var heima. Ég er því búin að vera breyta og bæta á heimilinu og það er svona líka rosalega fínt. Almar er kominn með leiksvæði með bílabraut í geymsluna, rosa fínt þegar ég er að læra því ég heyri ekkert í honum ;)

Á fimmtudaginn síðasta var rosalegt kveðjupartý í vinnunni sem byrjaði með paintball. Ég missti af því þar sem ég var í stærðfræði, en það gerði ekkert til, leikarnir stóðu stutt yfir því öðrum yfirmanninum tókst að brjóta ökklann í tvennt, slíta liðbönd og hásin eiginlega alveg í byrjun leiks. Hann var sendur með sjúkrabíl upp á slysó og fór beint í aðgerð greyið. Hann fýlaði sig svo eins og hermann að hann tók eitthvað stökk til að koma sér í skjól sem endaði svona. Það tók hann víst langan tíma að leiðrétta misskilning upp á slysó að hann hefði ekki verið á gæsaveiðum ;)

Við fórum svo á Fjörukránna og borðuðum og enduðum kvöldið á karokí keppni sem tókst sovna líka svakalega vel :D

Í kvöld er svo Haustfagnaður Kaupþings og ég tók bara að mér að vera edrú fyrir hönd skemmtinefndar. Legg ekki í meira djamm í bili, tekur ekkert smá mikla orku frá náminu og fleiru :þ

Heyrðu já og af því að álagið á mér er ekki meira en þetta þá er ég búin að samþykkja að fara yfir í aðra deild eftir hádegið næstu vikur og bjarga þeim þar sem einn starfsmaður er í veikindafríi. Dagurinn minn verður sem sagt svona:

  8.00 – Fyrirtækjaráðgjöf

12.30 – Viðskiptabankasvið

16.15 – Skóli

19.00 – Almar og almenn heimilisstörf

21.00 – Heimanám þar til ég sofna fram á borðið

 

Já ekki mikið rúm fyrir msn, blogg, myspace eða face to face félagsskap í þessu prógrammi...  En svona er þetta. Maður getur ekki alltaf gert allt.

Ég ætla nú samt aðeins að hitta hana Kristrúnu mína á morgun og kíkja svo til Klöru og Báru sem eru með innflutnings-ammælist-party :D

Svo eru bara 6 dagar í að litla barnið mitt verði 7 ára. Hvað gerðist ég bara spyr... Þóra Björk litla frænka mín er búin að bjóðast til að hjálpa mér að skemmta krökkunum. Ég ætla helst að hafa þau úti í leikjum allan tímann og panta bara pítsur :D

 

Ég byrja í hinni vinnunni eftir helgi þannig að ég ákvað að nota tækifærið og blogga aðeins áður ;)

Vona að það sé gott að frétta af ykkur líka :D

 

Sösp

             

  

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti